Jóla jóla

Óska öllum gleðilegra jóla og góðra heilsu á komandi ári ásamt fullum bolla af æðruleysi.

Góðar stundir


F1

Hamilton ber nátúrulega höfuð og herðar yfir þessa karla hvað varðar aksturinn 
mbl.is Hamilton ók fullkomnlega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ál er allra mál

Hvernig væri nú að þeir sem stjórna í þessum nýsköpunarsjóðum fari nú að ýta undir með fyritækjum að ihuga meiri framleislu á vörum úr áli og hvetja skóla landsins til leggja áherslu á námi sem snýr að áli og þess háttar hlutum ekki bara horfa eftir álinu óunnu úr landi.

Þetta var nú bara svona smá íhugun i skamdeginu


Erlend viðskipti

Það er orðið ansi brýnt að stjórnvöld fari að taka ákörðun um það hvar eigi að bera niður í beiðni um aðstoð v/ gjaldeyrismála þjóðarinnar, ég held að fyritækin í landinu þoli ekki lengri bið eftir því að aðgengi gjaldeyris komist í lag, nú þegar eru allnokkur fyritæki komin í vandræði vegna þessa t,d í innkaupum á vörum og greiðslu eldri úttekta.

 


mbl.is Ákvörðun á allra næstu dögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Uppstokkun kvótakerfisins

Væri ekki tilvalið fyrir ráðamenn þjóðarinnar að stokka upp kvótakerfið sem er eitt af því versta sem gerst hefur fyrir Íslenskt þóðfélag að frátöldu þessum hörmungum sem ganga yfir okkur þessi misseri í fjármálheiminum.

Um leið og tekið er á bankamálunum og fjármálakreppunni væri ekki úr vegi að slá tvær flugur í einu höggi, innleysa kvótkerfið og hugsa það að nýju t,d með því að hafa það í leigu formi og deila leigukvótanum miðað við höfðatölu sjávarþorpana í landinu?

Einnig væri æskilegt að skilyrða kvótan þannig að aflinn yrði fullunninn á svæðinu til að skapa frekari atvinnu á staðnum.


F1 um helgina

Jæja þá er komið að því, Hamilton verður heimsmeistari á morgun í F1 þó fyrr hefði verið eða öllu heldur hann tryggir sér sætið

Hagfræði 103

Ef þið hefðuð lagt 100.000.krónur í að kaupa hlutabréf Nortel fyrir einu ári síðan væri verðmæti bréfanna í dag um 4.900 krónur.

Hefði sama fjárfesting verið lögð í Enron væri sú eign í dag um 1.650 krónur.

Hefðuð þið keypt bréf í World Com fyrir 100.000 krónur væri minna en 500 kall eftir.

Hefði peningurinn hinns vegar verið notaður til kaupa á Thule-bjór fyrir einu ári síðan þá hefði verið hægt að drekka hann allan og farið síðan með dósirnar í endurvinnsluna og hafa um 21.400 krónur upp úr því.

Þegar ofangreint er athugað virðist vera vænlegur kostur fyrir fjárfesta að drekka stíft og endurvinna!

Góðar stundir.  


Oft er þörf en nú er nauðsyn

Eftir alla þessa orrahríð við yfirtöku ríkisinns á bönkunum væri þá ekki rétta að bæta um betur og leysa til sín aftur fiskveiðikvóta þóðarinnar úr höndum þessara örfáu aðila sem hafa verið að braska með kvótann til þessa eða afrakstur hanns,meðal annars verið í fjárfestingum í fyrrgreindum bönkum ásamt hinum ýmsu félögum og sjóðum bæði hér og erlendis.

 Eða hvað finnst ykkur?

 

Góðar stundir.


Í þungum þönkum.

Er ekki orðið tímabært að að þessir útrásarglöðu Cocopuffs drengir í bönkunum verði gerðir ábyrgir gerða sinna eða að minnsta kosti sýni það í verki að einhver sé ábyrgð þeirra í þessu glórulausa bulli sínu, gæti ég til dæmis bent þeim á það að lækka hjá sér launin og eða skila inn einhverju af þessum miljörðum sem þeir hafa mokað undir botninn á sér undanfarin ár, þó ekki væri fastara að orði kveðið, því eftir hörmungar undanfarinna daga sýnist mér þeim ekki veita af að fá allmenningsálitið með sér og gæti þá ofangreind ábending komið að gagni.

Það er ansi hart að þjóðfélagið (Íslenska ríkið ) skuli þurfa að koma þessum aðilum sem stjórna þessum bönkum til hjálpar þegar þeir eru búnir að sólunda fé í allskynns miður góðar fjáfestingar, kaupréttasamninga og ofurlaun til helstu stjórnenda bankanna, ég sem aumur launþegi í þessu landi get bara ekki orða bundist lengur. Væri ekki réttast að þjóðnýta alla bankanna og koma þessum stjórnendum burt úr bankaumhverfinu og það strax, ráða til starfa fólk á launum sem er í takt við raunveruleikann þá þarf maður ekki að horfa uppá eða hlusta á það bull að hinn eða þessi hafi fengið kaupréttasamning, starfslokasamning, byrjendasamnig  og hvað allt þetta nú heitir fyrir tugi eða hundruð miljóna, þess í stað gamla góða reglan 3 mánaða uppsagnarfrestur, ráðinn í vinnu eða ekki. 

En var þetta ekki  betra hérna áðurfyrr í old days þegar bara þurfti að hafa áhyggjur af laxveiðiferðum bankamanna á kostnað vina og velunnara?

Góðar stundir.


Upphafið

Er aðeins að fara að prófa að færa inn a þessa bloggsiðu vonandi kemur eitthvað viturlegra siðar takk i dag

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband