Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál

Álversdraumur í Helguvík úti?

Fróðleg væri að fá staðfestingu á því hvort rétt sé sem ég heyrði um daginn að hætt væri við framkvæmdir álvers í Helguvík og að nú þegar væri búið að segja upp öllum starfsmönnum á skrifsofu framkvæmda þar að lútandi.

Þetta þykja mér slæm tiðindi ef satt er, þar sem ekki veitti nú af atvinnuni sem þessi framkvæmd skapar.


Ál er allra mál

Hvernig væri nú að þeir sem stjórna í þessum nýsköpunarsjóðum fari nú að ýta undir með fyritækjum að ihuga meiri framleislu á vörum úr áli og hvetja skóla landsins til leggja áherslu á námi sem snýr að áli og þess háttar hlutum ekki bara horfa eftir álinu óunnu úr landi.

Þetta var nú bara svona smá íhugun i skamdeginu


Hagfræði 103

Ef þið hefðuð lagt 100.000.krónur í að kaupa hlutabréf Nortel fyrir einu ári síðan væri verðmæti bréfanna í dag um 4.900 krónur.

Hefði sama fjárfesting verið lögð í Enron væri sú eign í dag um 1.650 krónur.

Hefðuð þið keypt bréf í World Com fyrir 100.000 krónur væri minna en 500 kall eftir.

Hefði peningurinn hinns vegar verið notaður til kaupa á Thule-bjór fyrir einu ári síðan þá hefði verið hægt að drekka hann allan og farið síðan með dósirnar í endurvinnsluna og hafa um 21.400 krónur upp úr því.

Þegar ofangreint er athugað virðist vera vænlegur kostur fyrir fjárfesta að drekka stíft og endurvinna!

Góðar stundir.  


Í þungum þönkum.

Er ekki orðið tímabært að að þessir útrásarglöðu Cocopuffs drengir í bönkunum verði gerðir ábyrgir gerða sinna eða að minnsta kosti sýni það í verki að einhver sé ábyrgð þeirra í þessu glórulausa bulli sínu, gæti ég til dæmis bent þeim á það að lækka hjá sér launin og eða skila inn einhverju af þessum miljörðum sem þeir hafa mokað undir botninn á sér undanfarin ár, þó ekki væri fastara að orði kveðið, því eftir hörmungar undanfarinna daga sýnist mér þeim ekki veita af að fá allmenningsálitið með sér og gæti þá ofangreind ábending komið að gagni.

Það er ansi hart að þjóðfélagið (Íslenska ríkið ) skuli þurfa að koma þessum aðilum sem stjórna þessum bönkum til hjálpar þegar þeir eru búnir að sólunda fé í allskynns miður góðar fjáfestingar, kaupréttasamninga og ofurlaun til helstu stjórnenda bankanna, ég sem aumur launþegi í þessu landi get bara ekki orða bundist lengur. Væri ekki réttast að þjóðnýta alla bankanna og koma þessum stjórnendum burt úr bankaumhverfinu og það strax, ráða til starfa fólk á launum sem er í takt við raunveruleikann þá þarf maður ekki að horfa uppá eða hlusta á það bull að hinn eða þessi hafi fengið kaupréttasamning, starfslokasamning, byrjendasamnig  og hvað allt þetta nú heitir fyrir tugi eða hundruð miljóna, þess í stað gamla góða reglan 3 mánaða uppsagnarfrestur, ráðinn í vinnu eða ekki. 

En var þetta ekki  betra hérna áðurfyrr í old days þegar bara þurfti að hafa áhyggjur af laxveiðiferðum bankamanna á kostnað vina og velunnara?

Góðar stundir.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband