Færsluflokkur: Fjármál

KOSNINGAR UM ICESAVE BÖLVUNINA

Ég hvet og vil að allir kosningabærir Íslendingar gangi sem einn til kosninga um Icesave þegar til þeirra stundar kemur, ef að mínar óskir verða uppfylltar þá fellum við samninga um Icesave, látum Breta og Hollendinga sækja sínar kröfur um greiðslur í gegnum dómstóla og ekkert helvítis múður.

Ég er orðinn  leiður á þessu rausi um að ef ekki verði samið um þetta strax, þá komi það til með að bitna á okkur í formi vaxtahækkana, hærri verðbólgu og að lánshæfismat Moody's setji okkur í ruslflokk ef við kyngjum ekki oki þessara þjóða, ef þannig fer þá verður bara svo að vera.
 
ÉG VIL EKKI GREIÐA ICESAVE Á ÞEIM FORSENDUM SEM HEFUR VERIÐ LAGT UPP MEÐ TIL þessa.

Ég skulda Bretum ekki eina krónu og hef aldrei gert og því síður Hollendingum , ef að þeir vilja fá eitthvað fyrir þessa ICESAVE reikninga frá þjóðinni þá geta þeir fengið Landsbankann eins og leggur sig, sem er jú upphaflega rót vandans.

Góðar stundir.


Icesave Össur og Hollendingarnir

Hvað í andskotanum halda þessir Hollendingar að þeir séu eignlega, ég held að þeir ættu bara að hafa sig hæga, og vera ekkert að þrýsta á um frágang á þessum Icesave málum það á bara gera þeim það ljóst að ef það á að þrýsta á okkur með þessi mál geta þeir bara farið dómstólaleiðina og innheimt þessar skuldir með þeim hætti, sem er að sjálfsögðu rétt aðferðarfræði.

Það eina rétta væri ef Össur (GUNGA) léti þessa kauða vita af því, en það er víst lítil hætta á því að Össur hafi kjark í það.

Ekki vantaði yfirlýsingarnar hjá Össuri hér áður fyrr, en það er eins með vindinn sem blæs, bara spurning um áttir. Whistling

 

Góðar stundir.


Ríkissaksóknari vanhæfur !

Þetta var eina vitræna ákvörðunin hjá Valtý Sigurðssyni eins og staða hans var gagnvart tengsla við eins af stjórnendum Exista.

Þannig verður bara að taka á þessum málum það mega bara alls ekki vera um hugsanleg hagsmunatengsl að ræða þegar kemur að rannsókn svona mála, menn verða bara vera hafðir yfir allan grun.

Ég tek hatt minn ofan fyrir Valtý Sigurðssyni ef hann víkur sæti.

Góðar stundir.


mbl.is Björn verður ríkissaksóknari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband